Ekki er ég nú mjög dugleg að blogga undanfarið og jafnvel hef ég ekki verið mjög dugleg að blogga yfir höfuð. Ástæðan er kanski mest sú að talvan hjá mér er ekki mjög skemmtileg að fara í þannig að ég fer svo sjaldan í hana. Hún er orðin svo léleg að ég er farin að halda að ef ég horfi og of mikið á hana hrynji hún.
Loksins er frostið farið að minnka aftur, en hér er búið að vera 10-15% frost upp á hvern einasta dag í rúmar tvær vikur a.m.k.
Einar Örn litli kúturinn minn er veikur heima núna. Hann hefur ljótann hósta og hita um 39- 40%. Hann er búinn að vera frekar óheppinn í vetur það virðist vera að hann ætli að taka allar flensur sem eru að ganga. Þetta byrjaði um miðan desenber og nánast stanslaust sína í byrjun janúar og svo aftur núna og ekki hlakkar mér til vegna þess að þessi veiki hefur staðið yfir hjá krökkum hér í um hálfann mánugð ég bara krosslegg fingur og vona að svo verði ekki á þessu heimili
Ingvar Óli hefur verið mikið heppnari í þessum málum hann hefur einu sinni veikst af einhverri niðurgangspest sem hann er ekki enþá að jafna sig almennilega á en það endaði með því að ég ákvað að fara með hann til læknis og læknirinn vildi fá sýni til ransóknar til að sjá hvort að þetta sé eitthvað meira en bara flensan sem að er að ganga. :Það þurfti líka að senda sýni frá Einari Erni.
Ingvar Óli er búinn að vera möjg óþekkur undanfarið hann hefur ekkert hlustað á mig. Hann á að koma heim eftir gæslu í skólanum en hann er alltaf farinn að leika við einhverja vini sína og kemur ekki heim til að læra.
Ég hef haft það fyrir reglu að hann komi heim eftir skóla og læri strax áður en að litli bróðir hans kemur heim úr leikskólanum.
Í gær fór hann alveg yfir strikið og fór að leika sér í ánni ásamt nokkrum jaföldrum sínum sem er STÓRHÆTTULEGT og hann veit það . Nú er hann í ströngu banni. Hann er bara að gá hvað hann kemst langt með mann það gera allir krakkar einhvertímann.
Ingvar Óli er kominn á reiðnámskeyð og það gengur rosa vel allavega firsti tíminn síðasta mánudag og hann er mjög ánægður. Hann er efni í mjög góðann hestamann sýnist mér allavega vantar ekki águgann. Honum er líka farið að ganga betur í skólanum en first og allt á uppleið þar finst mér,enda er hann líka duglegur og áhugasamur srtákur og vill gera hlutina vel.
Af mér er að frétta allt það sama og ekkert nýtt bara vinna éta sofa láta Ingvar Óla læra svæfa o.s.f.v.
Sama er að segja af Sigga ekkert sérstakt.
Jæja nú er kvótinn kláraður í bili hafið það sem best þangað til næst kv